Fara beint í efni

Starfið

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Ísland skuldbatt sig til 17 heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, sem voru samþykkt í september 2015 fyrir tímabilið 2016–2030. Markmiðin ná yfir 169 undirmarkmið er varða bæði innlent og alþjóðlegt samstarf.

Markmiðin eru samþætt og óaðskiljanleg og mynda jafnvægi á milli þriggja stoða sjálfbærrar þróunar; þeirrar efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu.

Með Heimsmarkmiðunum er stefnt að því að eyða fátækt, tryggja velmegun, mannréttindi og jafnrétti um allan heim með hliðsjón af umhverfi okkar, bæði á landi og sjó. Sérstakt þema samþykktarinnar er að enginn verði skilinn eftir, að markmið hennar nái til allra jarðarbúa og að sérstök áhersla verði lögð á þá allra fátækustu.

https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2015/09/25/Ny-Heimsmarkmid-um-sjalfbaera-throun/