
1. maí 2026
Sænska landsbyggðarþingið
Annað hvert ár er Sænska landsbyggðarþingið haldið og nú í maí var það haldið í Skellefteå
Annað hvert ár er Sænska landsbyggðarþingið haldið og nú í maí var það haldið í Skellefteå sem er norðarlega í Svíþjóð ekki langt frá Umeå. Um 400 manns sóttu þingið aðallega frá landsbyggðum Svíþjóðar, nokkrir frá Finnlandi og undirrituð frá Íslandi sem fulltrúi íslensku samtakanna Landsbyggðin lifi.
Svíar eru einstaklega framarlega þegar kemur að landsbyggðarmálum. Landsbyggðarþing var fyrst haldið þar árið 1989 til að gefa röddum landsbyggðarinnar áheyrn, því allir kannast við hvernig fjölmennustu kjördæmin glymja hæst og lágstemmdara fólk í strjálbýli vill gleymast. Síðan hefur það verið haldið um það bil annað hvert ár.
Þingið er skipulagt af sænsku samtökunum Hela Sverige Ska Leva og er fyrir alla sem vinna að málefnum landsbyggðarinnar, hvort sem er fræðimenn, stjórnmálamenn, þingmenn, ráðherrar og sveitarstjórnarmenn, félagasamtök og grasrótarsamtök. Samtökin Hela Sverige Ska Leva eru á sænskum fjárlögum sem gerir þeim kleift að halda úti öflugu starfi, meðal annars að skipuleggja þetta merkilega þing.
Fyrsta daginn eru yfirleitt vettvangsferðir til að skoða alls konar frumkvöðlastarf á landsbyggðinni og þingið sjálft daginn eftir. Í ár var m.a. þorpið Travelsjö heimsótt og fræðst um verkefnið Tíu Toppa Travelsjö. Íbúar þorpsins, 245 manns, komu saman til að ræða áskoranir og möguleika og hvernig þeir gætu sett Travelsjö á kortið til að fá ferðamenn á svæðið. Þeim datt í hug að nýta fallegu fjalladýrðina í kring og búa til útivistarsvæði með merktum fjallgönguleiðum. Til að tryggja að svæðið yrði áfram í eigu þeirra slógu þeir saman og keyptu svæðið af kirkjuyfirvöldum. Þetta var eingöngu hægt því íbúar stóðu saman.
Einnig var heimsókn á elliheimilið í Sjöbacka til að heyra hvernig íbúar komu í veg fyrir að elliheimilinu væri lokað með því að standa saman og þrýsta á yfirvöld. Samtakamáttur íbúa er mikill en það hjálpaði ekki síður að hafa samtök eins og Hela Sverige Ska Leva til að brúa bilið á milli yfirvalda og fólksins.
Um kvöldið var formleg setning þingsins niðri við sjálfa ána Skelleftå og boðið upp á „hamborgara“ þeirra Svía sem er eiginlega frekar kjötfarsborgari í brauði og eingöngu borið fram með tómatsósu og sinnepi. Talsvert ólíkt okkar hamborgunum en dugði til að sefa sárasta hungrið.
Þingið var haldið í hæsta timburhúsi í Svíþjóð. Menningarhúsið Sara og Wood Hotel (Viðarhótelið) eru saman í þessari merkilegu 20. hæða byggingu, byggð alfarið úr timbri, fyrir utan kannski lyfturnar og fleira smotterí úr stáli. Herbergin eru þiljuð með viði, gólfið og loftið úr viði, samt hljóðeinangruð og hljóðlát. Herbergið mitt var uppi á 14. hæð með glugga sem náði frá gólfi og upp í loft og frábært útsýni yfir bæinn. Ráðstefnusalurinn í menningarhúsinu var líka að sjálfsögðu þiljaður frá lofti til gólfs. Ótrúlega falleg smíð.
Þingið hófst á slaginu klukkan 9 í stóra ráðstefnusalnum.Á sviðinu var panell af sérfræðingum og rætt um landsbyggðarmál. Hver er framtíð landsbyggðarinnar? Hvernig getum við tryggt áframhaldandi búsetu á landsbyggðinni? Hvernig getum við tryggt réttindi íbúa á landsbyggðinni þar sem aðstæður eru svo ólíkar? Hvernig getum við byggt upp og betrumbætt? Hvernig höldum við fólki ánægðu?
Það eru reyndar aðallega borgarbúar sem halda að það sé betra að búa í borginni. Reglulega eru birtar niðurstöður um hvar er best að búa og alltaf skorar Stokkhólm hæst. Ég spjallaði við eina sem býr í Rakunda sem skorar alltaf lægst í þessum rannsóknum og hún skildi bara ekkert hvernig hægt væri að fá þetta út. Hún bjó í Stokkhólmi í nokkur ár og voru það hennar verstu ár. Hún var alltaf hrædd, þekkti fáa, fannst hún einangruð og ósýnileg. Hún var eins og einn maur innan um aðra milljón maura. Eftir að hún flutti til Rakunda (hún fæddist einmitt í Skelleftå þar sem þingið var haldið og því landsbyggðarbarn), þótt hún væri splunkuný á staðnum fann hún hvernig fólkið tók vel á móti henni. Hún upplifði sig velkomna og ekki ósýnilega lengur. Hún var aftur orðin manneskja. Kannski var könnunin einmitt gerð til að plata fólk til að flytja til höfuðborgarinnar til að þjappa öllum á sama stað. Svipað er að gerast hér á landi þar sem 70% landsmanna býr nú á höfuðborgarsvæðinu eða innan klukkutíma aksturs.
Á milli panela í stóra áheyrnarsalnum voru smærri „vinnustofur“ þar sem kynnt voru ákveðin verkefni og líka einhverjar með sérfræðingum og stefnumótunarfólki. Vinnustofurnar voru áhugaverðar og gaman að heyra sögur fólksins sjálfs. Ég hlustaði meðal annars á landsbyggðarbanka Landshypotek, svipaðan og sparisjóðirnir okkar voru, stofnaðir af fólkinu og fyrir fólkið. Landshypotek bankinn lánar eingöngu til bónda og landsbyggðarbúa sem skiptir miklu fyrir landsbyggðina. Við þurfum að endurvekja sparisjóðina hér á landi og styðja þá sem eftir eru. Það er mikilvægt að hafa bankana í eigu fólksins svo hagnaðurinn renni til okkar sjálfra, ekki í vasa örfárra olígarka. Fyrir utan að íslenskir bankar vilja frekar lána til stórra leigufélaga heldur en að venjulegt fólk geti keypt sitt eigið húsnæði. En ekki skrítið þar sem sömu mennirnir eru á bak við bankana og leigufélögin.
Sérfræðingarnir voru að sjálfsögðu með alls kyns falleg orð og háfleygar sýnir og mikla stefnumótun, en þegar allt kemur til alls er það fólkið sjálft á staðnum sem skiptir hvað mestu máli hvað framfarir varða.
Um kvöldið var svo hátíðarkvöldverður og verðlaun veitt þeim frumkvöðlum sem sköruðu framúr. Á milli verðlaun spilaði tónlistarmaður, sem er Sami, ýmist einn eða með félögum og sagði sögur á milli af því hvernig það er að vera Sami. Hann er hreindýrabóndi, fer á veiðar, kallast á við fuglana, hlustar á veðrið og endurspeglar tónlistin hans það. Stundum var tónlistin einmitt eins og vetrarvindagnýr.
Þingið lauk á hádegi daginn eftir og hver fór til síns heima. Mín beið klukkutíma flug til Stokkhólms og þaðan heim, sem sýnir hversu langt Skellefteå er norður í landi.
Kannski munum við Íslendingar einhvern tímann halda svona landsbyggðarþing. Landsbyggðin er nefnilega ekki bara eitthvað langt í burtu heldur bráðnauðsynleg sjálfbærni landsins. Þar er stærsta vega kerfið, mestallar auðlindirnar og okkur öllum í hag að landsbyggðin blómstri.
Landsbyggðin lifi eru íslensk samtök hverra markmið er að styðja við grasrótarsamtök á landsbyggðinni og efla landsbyggðina eins og mögulegt er. Annað hvert ár höldum við málþing í tengslum við aðalfund. Síðast var það haldið í Grindavík, þar á undan á Egilsstöðum og næst verður það haldið í Eyjafirði eða á Akureyri. Aðild er ókeypis og eru allir velkomnir. Hægt er að skoða heimasíðuna okkar landlif.is og senda tölvupóst á landlif@landlif.is
Höfundur er formaður samtakanna Landsbyggðin lifi
