
21. október 2026
Kostir og gallar við að búa í mörgum byggðarlögum. Vefmálþing 3. nóvember klukkan 17:00 í tengslum við verkefnið Coming, Staying, Living
Vefmálþingið er í tengslum við verkefnið Coming, Staying, Living sem hefur nú verið í gangi á þriðja ár.
Vefmálþingið er í tengslum við verkefnið Coming, Staying, Living sem hefur nú verið í gangi á þriðja ár. Við heimsóttum Danmörku í mars og Finnland í september og í maí s.l. tókum við á móti hópnum og héldum frábært staðarþing á Kirkjubæjarklaustri með fullt af áhugaverðum fyrirlestrum og viðburðum. Nú er komið að fræðimannaspjallinu og er umfjöllunarefnið hversu gott eða slæmt er að fólk skuli eiga heimili á tveimur stöðum, t.d. aðalheimili í borg og frístundaheimili úti á landsbyggðinni. Hverjir eru kostir og gallar?Okkar maður er Hjalti Jóhannesson, fræðimaður við Háskólann á Akureyri sem hefur mikið rannsakað landsbyggðarmál.Hér er hlekkur https://bit.ly/3U9kICK?r=qr til að komast á þingið en einnig er hægt að skanna QR-kóðann sem kemur fram í auglýsingunni.
