
15. janúar 2026
Hvað ef ég á ekki bíl á landsbyggðinni?
Ástæðan fyrir því að við völdum þetta efni var að ríkisstjórnir Evrópu keppast við að hvetja til bíllauss lífsstíls með nýbyggingum án bílastæða og eflingu hjólastígum. Svo er náttúrulega hin umdeilda borgarlína enn í umræðunni þrátt fyrir fyrirsjáanlegt tap á rekstri hennar. Það væri hægt að bjóða höfuðborgarbúum frítt í strætó í 100 ár fyrir sama verð og tekur að byggja upp þessa einu línu.
Hvað ef ég á ekki bíl á landsbyggðinni?
Fimmtudaginn 15. janúar s.l. héldu samtökin Landsbyggðin lifi vefmálstofu um almenningssamgöngur á landsbyggðinni í tengslum við norræna verkefnið Koma, dvelja, búa, sem fjallar um hvernig er hægt að gera fólki kleift að dvelja áfram á landsbyggðinni og nýju fólki kleift að flytja þangað.
Ástæðan fyrir því að við völdum þetta efni var að ríkisstjórnir Evrópu keppast við að hvetja til bíllauss lífsstíls með nýbyggingum án bílastæða og eflingu hjólastígum. Svo er náttúrulega hin umdeilda borgarlína enn í umræðunni þrátt fyrir fyrirsjáanlegt tap á rekstri hennar. Það væri hægt að bjóða höfuðborgarbúum frítt í strætó í 100 ár fyrir sama verð og tekur að byggja upp þessa einu línu.
Hvað með þá sem búa á landsbyggðinni og eiga ekki bíl? Hvar með þá sem eru hættir geta keyrt sökum aldurs eða unga fólkið sem vill stunda íþróttir? Er bíllaus lífstíll í boði á landsbyggðinni?
Framsögumenn voru Helga Guðný Kristjánsdóttir, íbúi frá Vestfjörðum, Hulda Rós Bjarnadóttir frá Vegagerðinni og Katrín Gunnarsdóttir frá Kirkjubæjarstofa. Jafnframt var Hjalti Jóhannesson frá Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri til staðar.
Vegagerðin ber ábyrgð á almenningssamgöngum inn í hvert sveitarfélag með strætó, ferjum eða flugi. Sveitarfélögin bera síðan ábyrgð á að tengja saman byggðirnar innan þess. Með sameiningu sveitarfélaga verða þau sífellt stærri og því kostnaðarsamara að halda uppi þjónustu. Svo mikið að fámennari byggðir eins og Kópasker og Raufarhöfn eru algjörlega án almenningssamgangna og Þórshöfn eingöngu tengt með flugi. Eins er stórt gat á milli Egilsstaðar og Hafnar.
Hvað gerist ef manneskja sem býr á þessum svæðum á ekki bíl eða er hætt að geta keyrt og þarf að fara til læknis eða kaupa inn? Hún er algjörlega upp á ættingja eða vini komin og þarf jafnvel að flytja nær þjónustu með tilheyrandi kostnaði og ekki víst að hún geti selt íbúðarhúsið. Hvað með réttinn til að búa heima hjá sér? Hvað með vinnandi fólk sem vill búa á landsbyggðinni?
Nú sem stendur eru reglulegar strætóferðir frá höfuðborgarsvæðinu til Hafnar annars vegar og til Akureyrar hins vegar, en allar aðrar leiðis einungis virkar á sumrin. Sumarstrætó gengur sem sagt til Hólmavíkur og eins Reykhóla en ekki annað. Hér er því sama vandamál og á Norðausturlandi. Fólk getur ekki búið úti á landi og unnið í öðru bæjarfélagi nema að eiga bíl. Enda eiga allir landsbyggðarmenn bíla því þeir vita að það er eina leiðin til að komast um.
Sem dæmi má nefna að foreldrar með ung börn á Kópaskeri þurfa nú að keyra 120 km á dag ef þau vilja hafa börnin í leikskóla sem er í 30 km fjarlægð. Tvær ferðir fram og til baka. Þetta er líka mikil fjarlægð ef eitthvað skyldi koma upp á. Boðið er upp á akstur fyrir grunnskólabörnin en það þýðir langan tíma í skólabíl, tíma sem þau gætu notað í eitthvað annað. Það er ljóst að barnafjölskyldur muni ekki sækjast í að flytja til staðar sem er hvorki með skóla né leikskóla. Nema heimaskólun verði aftur leyfileg þar sem foreldrum er gert kleift að kenna börnum sínum sjálf.
Samkvæmt Katrínu eru það aðallega útlenskir starfsmenn hinna fjölmörgu hótela og gistiheimila um landið sem eru bíllausir og komast ekkert nema fá lánaðan bíl hjá heimamanni. Þeir kvarta sáran og sveitarfélögin of fjárvana til að svara kalli þeirra. Sums staðar hefur verið opnað fyrir að skólaakstursferðir geti líka tekið almenna farþega sem er mikil búbót fyrir þá bíllausu.
Á nýafstöðnu landsbyggðarþingi Evrópu sem haldið var í Skotlandi kynntum við okkur aðstæður þar í landi. Byggðir eru dreifðar þar eins og hér og skortur á reglubundnum almenningssamgöngum sem er helsta ein hindrunin fyrir búsetu og þátttöku í samfélaginu. Þeir tala um „Access deprivation“ þegar fólk hefur ekki aðgang að grunnþjónustu eins og heilbrigðiskerfi, matverslunum og stað til að hitta annað fólk. Þetta mætti þýða sem „aðgangssvelti“ og er eins og nafnið ber með sér ekki vænlegt til hamingju eða öryggistilfinningu fólks.
Í Skotlandi tóku íbúar sjálfir málin í sínar hendur og stofnuðu sjálfboðaliðasamtök sem bjóða upp á einkaakstur til dæmis fyrir aldraða sem eru ekki á bíl og þurfa að komast í verslun, til læknis eða í félagsstarf. Ríkið greiðir fyrir bensínið en það eru sjálfboðaliðar sem sjá um aksturinn. Enda er löng hefð fyrir sjálfboðavinnu í Skotlandi, sem er kannski ekki hér á landi.
Í Frakklandi er talað um „þurr“ svæði þar sem næsta sjúkrahús er í meira en klukkutíma fjarlægð. Barnafjölskyldur flytja ekki þangað og sérstaklega ekki konur á barneignaraldri. Þar býr nú aðallega gamalt fólk og breskir eldriborgarar sem sækja í betra veður og ódýrara áfengi.
Hvort landsbyggð Ísland heldur áfram að vera byggð er algjörlega pólitísk spurning. Ef grunnþjónusta heldur áfram að hverfa frá byggðum þessa lands munu svæði leggjast í eyði. Auðvitað eru þetta hægfara breytingar og ekkert víst að bíllaus lífstíll muni nokkurn tímann skjóta bólfestu á landsbyggðinni. En það er samt gagnlegt fyrir sveitarfélög að huga að þessum hlutum. Samgöngur eru félagslegt réttlætismál, ekki aðeins tæknilegt verkefni yfirvalda.
