Starfið / Stjórnarfundir /
Símafundar stjórnar LBL með samstarfsaðilum um Horft til framtíðar
Fundargerð símafundar stjórnar LBL með samstarfsaðilum um Horft til framtíðar. Símafundur 14. janúar 2009. Hófst samkv. boðun kl.16.30 Þátttakendur voru stjórnarmennirnir: Ragnar Stefánsson, Sigríður Svavarsdóttir., Þórarinn Lárusson, Elísabet Gísladóttir, Stefanía Gísladóttir og Sævar Sigbjarnarson. Úr varastjórn: Sveinn Jónsson og Þormóður Ásvaldsson. Eftirtaldir gestir mættu: 1. Gunnar Jóhannesson frá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga 2. Guðrún Þóra frá Háskólanum á Hólum, 3. Edvard Huijbens frá Háskólanum á Akureyri. 4.Ásbjörn Björgvinsson frá Markaðsstofu Norðurlands, 5. Ómar Antonsson Stjórnarform.eiganda sjávarjarða Þórarinn Lárusson, formaður LBL, tók að sér fundarstjórn og Sævar að rita minnispunkta með ósk um að Sigr. Svavars annaðist lokafrágang og útsendingu fundargerðar. Áður en gengið var til dagskrár gerðu gestirnir grein fyrir sér. 1. Dagskrá vegna undirbúnings á fundaherferð: LBL ákveður að efna til opinna umræðufunda víða um land í samstarfi við ýmsa aðila og hagsmunasamtök undir kjörorðinu: Horft til framtíðar. 2. Fundarefni, kynning fundanna: Í ljósi atburða undanfarinna mánaða viljum við stuðla að stefnumótandi umræðu um allt land um eflingu byggðar um framtíð og þróun íslensks samfélags. Á fundunum verður fjallað um tvö meginefni: 1. Atvinnumál: undir kjörorðinu, AÐ LIFA AF LANDSINS GÆÐUM ( Sjávarútveg, landbúnað, ferðaþjónustu, iðnað, nýsköpun og alþjóðatengsl.) 2. Eflingu lýðræðis: 3. Efling lýðræðis: Kosningafyrirkomulag, beint lýðræði. Aukin þátttaka og áhrif almennings á ákvarðanir í heimabyggð og í samfélaginu í heild 3.Hvernig fundir? Stefnt verður að því að fundirnir skiptist í, annars vegar stutt framsöguerindi um tiltekin mál og hins vegar pallborðsumræður, þar sem almenningi gefst góður tími til að koma skoðunum sínum á framfærifá svör við áleitnum spurningum. Fundirnir eru ekki hugsaðir sem prédikanir einstakra framsögumanna, heldur sem vettvangur fyrir nýjar hugmyndir og viðhorf, sem koma ekki síður frá almenningi á hverjum stað en frá framsögumönnum. Leitast verði við að koma hugmyndum í farveg til framkvæmda eða úrvinnslu. Fundaformið mun einnig skapast af samkomulagi við samstarfsaðila. T.d. var ræddur sá möguleiki að boðaður útifundur (með svipuðu sniði og verið hafa eftir ,,bankahrun”) gætu orðið upphitun fyrir innifund. 4. Hvenær? Fyrsti fundurinn verði á Akureyri um miðjan dag, 7. febrúar. Ákveðið var að skipa í nefnd sem sæi um skipulagningu á Akureyrarfundinum en þarf að vanda til hans, því áframhald ræðst að hluta af því hvernig til hans tekst. Síðan fylgi fleiri fundir í kjölfarið. Eftirtaldir staðir verði skoðaðir: Húsavík, Dalvík, Egilsstaðir, Vopnafjörður, Hornafjörður, Reykjavík, Selfoss, Ísafjörður o.s.frv. eftir því hvar tengsl nást til að taka á móti fundum. Í Undirbúningsnefnd fyrir Akureyrarfundinn verði: Ragnar, Sigríður, Ásbjörn George og Edward. (Ábending ritara) Skipaðar verði nefndir fyrir næstu fundi á næsta stjórnarfundi 21/1 Gestir tilbúnir að liðka fyrir fundaherferðinni. Ásbjörn tók að sér að ræða hugmyndina á fundi með samherjum sínum í Reykjavík, en hann er að fara á fund með forstöðumönnum allra markaðsstofa á landinu. Er það von hans að þeir taki vel í að vinna með okkur á sínum svæðum. Þórarinn fór þess á leit við Gunnar að hann hefði samband við önnur Atvinnuþróunarfélög, sem hann tók vel í. Hann benti Sigríði á að hafa samband við Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar vegna Akureyrarfundarins. Guðrún Þóra taldi að við ættum að fá raddir unga fólksins inn í umræðuna, fá ungt fólk sem hefur hugmyndir að borðinu, í hverri sveit. 5. Hver heldur fundina? Samþykkt var að Landsbyggðin lifi standi að fundunum í samstarfi við þau samtök og stofnanir , sem um semst á hverjum stað. 6. Framsögumenn. Á fyrsta fund er sérstaklega mikilvægt að fá þekkta menn til framsögu. Nefnd voru ýmis nöfn. Nefndinni var falið að ganga frá þeim málum. Að öðru jöfnu gangi heimamenn fyrir, og kostnaði verði stillt í hóf. 7. Fjármál? Leitað verði eftir að samtök eða stofnanir leggi fé og starfskrafta til verkefnisins. Félög á hverjum fundarstað fyrir sig sjái um mikilvæga þætti fundaundirbúnings. Fjáröflun þarf að vera trygg. Skoðist betur á næsta fundi stjórnar. Til greina kemur að safna peningum á fundunum til að standa undir kostnaði við auglýsingar og húsnæði. ( Þetta var ekki rætt á símafundi, en stóð í skjali) Stefnt að því að samtök sem leggja til framsögumann, kosti hann til fararinnar. 8. Framkvæmdastjóri verkefnisins. Engin ákvörðun tekin 9. Samstarfsaðilar um fundaherferð. Leitað hefur verið til eftirtalinna aðila og hafa nokkrir þeirra staðfest þátttöku. Bændasamtökin Fiskifélagið Ferðamálastofa Norðurlands Háskólinn á Akureyri Nýsköpunarmiðstöð Íslands Byggðastofnun Grasrótarhreyfing á Akureyri Atvinnuþróunarfélög Háskólinn á Hólum 10. Næsti fundur. Annar símafundur verður haldinn á sama tíma eftir viku, þ.e. 21.01.2009 kl. 16:30. Ákveðið var að stjórn LBL mundi hafa símafund fljótlega til að ákveða t.d. fjárhagsramma fyrir fundina. Fundi slitið kl.17.27 Sævar Sigbjarnarson Prentvæn útgáfa |