Landsbyggðin þykir óveðhæf | Baldur Eiríksson baldure@dv.is | 09.08.12, 17:52 | 2043 |
Frjálsi fjárfestingarbankinn neitaði að flytja veð frá Reykjavík til Reyðarfjarðar
Frjálsi fjárfestingabankinn vildi ekki flytja veð í húsinu.
Elísabet Reynisdóttir tapaði hálfri milljón vegna málsins.
„Danskur herragarður“: Óveðhæfur, að mati Frjálsa fjárfestingarbankans.
„Við höfum alltaf borgað reikningana okkar, meira að segja rétt eftir kreppu; alltaf. Við höfum aldrei komist í vanskil. Maðurinn minn er kominn með fínar tekjur og þeir fá fyrsta veðrétt í verðmætri eign á Reyðarfirði – samt hafna þeir því að flytja veðið,“ segir Elísabet Reynisdóttir, nemi við Háskóla Íslands, sem nýverið fluttist búferlum frá Reykjavík til Reyðarfjarðar.
Elísabet tók árið 2006 lán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum upp á 7 milljónir króna, tryggt með fyrsta veðrétti í eign sinni í Barmahlíð í Reykjavík. Sú eign er verðmetin í kringum 30 milljónir. Elísabet seldi nýverið þá eign og keypti einbýlishús á Reyðarfirði fyrir svipaða upphæð. Elísabet vildi í kjölfarið flytja veðréttinn yfir á nýju eignina og bauð veðhafanum, Frjálsa fjárfestingarbankanum sem nú er í slitameðferð vegna gjaldþrots, fyrsta veðrétt í nýju eigninni – en fékk synjun.
Gulltryggðir
Samkvæmt veðlögunum fær sá veðhafi sem á fyrsta veðrétt allt sitt greitt af andvirði veðandlagsins komi til þess að lántakandi geti ekki greitt af láninu, á undan öðrum veðhöfum. Svo virðist því sem lán Frjálsa fjárfestingarbankans sé jafn vel tryggt hvort sem það er tryggt með veði í fasteigninni í Reykjavík eða á Reyðarfirði. ,,Húsið sem ég keypti er eins og danskur herragarður; gífurlega flott eign,“ segir Elísabet.
Vegna synjunar bankans þurfti Elísabet að taka nýtt lán hjá Íbúðalánasjóði til að greiða niður téð lán Frjálsa fjárfestingarbankans – og tapaði háum fjárhæðum á þeim gjörningi. „Fyrir utan að þetta eyðilagði sumarfríið mitt þá tapaði ég í kringum hálfri milljón. Auðvitað veit ég að það eru aðrir sem hafa lent í verri hremmingum í viðskiptum sínum við þessar lánastofnanir en þessi umræða verður að fara af stað,“ segir Elísabet og bætir við að svona viðskiptahættir séu vanvirðing við landsbyggðina, þaðan sem stór partur þjóðarteknanna komi.
Hún sakar bankann um að hafa orðið margsaga í rökstuðningi sínum fyrir synjuninni. ,,Fyrst sögðu þeir að ástæðan væri sú að þeir hefðu ekki útibú á Reyðarfirði. Svo sendi ég tölvupóst og tjáði þeim þá skoðun mína að ég væri ekki sátt við gefna skýringu og þá drógu þeir hana til baka og sögðust ekki tryggja lán með veði í fasteignum utan Reykjavíkur og Akureyrar.“
„Frjálsa-veiðar“
,,Væntanlega vegna þess að Frjálsi hefur aldrei unnið á Reyðarfirði. Það er í rauninni verið að fara út fyrir starfssvæði bankans,“ segir Magnús Pálmarsson, upplýsingafulltrúi Frjálsa fjárfestingarbankans, um það hvers vegna bankinn samþykkti ekki téðan veðflutning.
Aðspurður hverju skiptir það skipti að húsið sé á Reyðarfirði ef bankinn er jafntryggður á báðum stöðum segir Magnús: ,,Það er bara valkostur lánastofnunarinnar hvort hún vilji veð á Reyðarfirði. Þar erum við ekki með neina samstarfsaðila, enga menn til að meta eignina; þetta er bara vesen ef eitthvað kemur upp á.“
En hvað gæti komið upp á? „Hún gæti hætt að borga. Og þá eigum við eign á Reyðarfirði. Ég held að menn líti á þetta sem síðra veð. Af hverju álíta menn landsbyggðina erfiðari? Vegna þess að hún er erfiðari – það er ekkert sem menn eru að giska á. Það er erfiðara að eiga eign á Reyðarfirði; þetta er lítill fasteignamarkaður og þarna er örugglega ekki mikil fasteignavelta.“
Magnús segist þó ekki hafa kannað ástand fasteignamarkaðarins á Reyðarfirði. „Hef ég kannað það eitthvað sérstaklega? Hefur þú kannað það eitthvað sérstaklega; þú ert að skrifa greinina?“ segir Magnús og bætir við: „Ef þú ert á einhverjum „Frjálsa-veiðum“ þá bara verði þér að góðu; hann er dauður. Þú ert ekkert að fæla neina viðskiptavini í burtu.“
Líflegur fasteignamarkaður
„Hér er búið að vera mjög líflegur fasteignamarkaður að undanförnu og mér finnst mjög furðulegt að heyra þessa sögu,“ segir Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, um málið. „Þarna [á Reyðarfirði] er bara svo sterk og mikil atvinnuuppbygging að þetta er mjög skrítið. Eðlileg fasteignaviðskipti geta farið fram á Reyðarfirði; ég get fullvissað þig um það.“
Heimild: DV.is
Baldur Eiríksson baldure@dv.is
|