Málþing um ræktarland og nýtingu þess. | Framfarafélag Dalvíkurbyggðar | 15.04.08, 07:14 | 5603 | Framfarafélag Dalvíkurbyggðar, aðildarfélag í Landsbyggðin lifi, mun standa fyrir málþingi um ræktarland og nýtingu þess, að Rimum í Svarfaðardal laugardaginn 26. apríl nk kl 14.
Mikil umræða hefur verið um ræktarland og nýtingu þess á undarförnum árum. Alls er talið að um 6% af flatarmáli Íslands sé gott ræktunarland. Ónotað ræktunarland hefur ekkert sérstakt verðgildi í samfélaginu, þótt það geti orðið mikils virði í framtíðinni. Nýting lands er að breytast mjög hratt. Sumarbústaðaland er í háu verði einkum þó í nágrenni þéttbýlis. Landeigendur sækjast eðlilega eftir því að selja land undir sumarbústaði. Land sem bútað er niður í sumarbústaðalóðir verður aldrei akur eða tún eftir það.
Í kjölfar þess að jarðir víða um land fara úr ábúð og komast í hendur aðila sem ekki ætla sér að nýta túnin til hefðbundinna nytja, hafa vaknað spurningar um hvaða aðrir nýtingarmöguleika en til fóðurframleiðslu séu fyrir hendi. Íbúar í Dalvíkurbyggð hafa ekki farið varhluta af þessari þróun í byggða- og atvinnumálum, og mörg tún sem flokkast undir góð ræktarlönd standa í sinu og eru ónýtt.
Nú er vinna við aðalskipulag fyrir Dalvíkurbyggð á lokastigi og þar er verið að skilgreina landbúnaðarland og flokka ræktarland eftir gæðum, með það fyrir augum að setja ákvæði um gott ræktarland.
Um þessi mál á málþingið að snúast og munu frummælendur sem hafa sérþekkingu á þessu sviði koma og velta upp möguleikum og tækifærum sem eru í stöðunni og vonandi svara eftir bestu getu eftirfarandi spurningum:
· Hvernig á að nytja tún sem standa ónýtt í dag?
· Eru fleiri möguleikar en að rækta gras og korn?
· Hvar er æskilegt að rækta skóg og hvar ekki?
· Þarf ekki að huga að flokkun ræktarlands og tryggja að góðir akrar verði ekki teknir undir óafturkræf önnur not s.s. frístundabyggð eða stórfelda skógrækt? -
Frummælendur á fundinum verða þau Ingvar Björnsson, jarðræktarráðunautur á Búgarði, Kristín Þóra Kjartansdóttir, sagnfræðingur og starfsmaður Sólskóga í Kjarna og Hrefna Jóhannsdóttir skógfræðingur á Norðurlandi og starfsmaður á rannsóknarsviði hjá Skórækt ríkisins á Mógilsá.
Framfarafélag Dalvíkurbyggðar
|