Aðalval 
    Forsíða
 Markmið
 Stjórn
 Lög
 Norrænt samstarf
 Greinar
 Gestabók
 Umsýsla
1923TURK-GRUP | AHMETCAN
 Starfið 
    Um starfið
 Fréttir
 Aðalfundir
 Stjórnarfundir
 Byggðaþing
 Styrktaraðilar LBL
 Unglingurinn á landsbyggðinni
 Farsæld til framtíðar
 Myndasafn 
    Möðrudalsfundur 2009
 Byggðaþing 2004
 Byggðaþing 2004 - 2
 Byggðaþing 2004 - 3
 Aðalfundur 2005
 Dalvík
 Tenglar 
    Vefir félagsmanna
 Velunnarar
 Fréttavefir
 Aðildarfélög 
    Framfarafélag Dalvíkurbyggðar
 Austur-Húnavatnssýsla
 Vestur-Húnavatnssýsla
 Vopnafjörður
 Skagahreppur
 Bakkafjörður
 Norðurhérað
 Öxarfjörður
 Neskaupsstaður
 Þingeyjarsveit
 Fellahreppur
 Breiðdalur
 Reykjavík
 Reykhólasveit
 Fljótdalshérað
 Snorri Pálsson framfarafélag
 Mjóifjörður
 Norðanverðir vestfirðir
 Einstaklingar og önnur félög
 Heimsóknir á síðuna 
  Núna: 5
  Í dag: 74
  Í allt: 545366

Leggja orð í belg >>

Svar við spurningum Ragnars með kveðju

| Sigríður Svavarsdóttir | 27.05.06, 14:01 | 9350 |

Landsbyggðin lifi-hvert stefnum við, hvernig eigum við að starfa ?

Opnum umræðuna hér á síðunni.

Nú nálgast aðalfundur samtakanna okkar, sem bera hið fróma nafn Landsbyggðin lifi (LBL). Markmið okkar er að efla byggð um allt land. En hvernig ætlum við að stuðla að þessu markmiði? Og þegar ég segi við, þá á ég við öll félög og samtök sem starfa undir merkjum Landsbyggðin lifi, en ekki síður fjölmörg önnur samtök sem vilja stuðla að sama markmiði.

Núna á næstum tveimur vikum, í undirbúningi aðalfundar LBL, langar mig að fá ykkur sem lesa þessa síðu til að leggja fram hugmyndir um starfið og um stefnuna og skella klausu inn í heimasíðuna okkar www.landlif.is um hvað þið viljið að sé gert, þó ekki væri nema 2-3 línur. Þær geta innihaldið meira, sem er mikilvægt, heldur en margar blaðsíður og verða líka meira lesnar. Ef ykkur er illa við að skrifa, þá hringið í einhvern sem þið kannist við t.d. í LBL til að koma því á framfæri á vefsíðunni sem þið vilduð sagt hafa.



Mig langar til að leggja nokkra punkta inn í umræðuna, mest sem spurningar:

Við viljum vera grasrótarsamtök.

Svar:Já við viljum vera það en verðum við ekki að vita hvað við viljum rækta, svo að við fáum rétta uppskeru.

Við viljum gera almenning sem virkastan í byggðaumræðunni og efla þannig meðvitund fólks um stöðu sína og verkefni til framtíðar.

Svar:

Við höfum verið að því en lítið orðið ágengt, því miður.


Við leggjum meiri áherslu á þetta en að byggja samtökin upp, t.d. með kjarna atvinnumanna. Hvað finnst ykkur um þetta?

Svar:

Já því ekki að fá atvinnumenn inn í umræðuna t.d smáfyrirtækja.


Eigum við að leggja megináherslu á að stofna fleiri félög innan LBL eða reyna að fá félög sem fyrir eru til að koma með í okkar regnhlífarsamtök ?

Svar:

Reyna að fá félög sem að eru starfandi frekar því að ég tel að mikið til sama fólkið sé í þessum áhugamannafélögum og verði sterkara í einu félagi en í fleirum.


Við viljum sameina alla sem hafa áhuga á eflingu byggðanna þvert á alla pólitíska flokka.

Svar:

Því ekki?? Virkjum mannauðinn.


Við viljum að innan okkar samtaka geti flokksmenn allra flokka starfað saman að mótun hugmynda og að því að hrinda hugmyndum í framkvæmd, hvort sem það er gegnum stjórnvöld, fyrirtæki eða einstaka framkvæmdamenn. Er þetta ekki mikilvægt hlutverk í sjálfu sér? Er þetta ekki mikilvægara en að við færum að bjóða fram í kosningum til alþingis eða til sveitastjórna, sem ég held að engum detti nú í hug? Hvað segið þið ?

Svar:

jú ekki spurning.


Við viljum efla atvinnulíf um allt land, en hvernig? Með því t.d. að setja upp hugmyndabanka um leiðir í atvinnumálum eins og sum félög hafa gert. Efla umræðu um þær leiðir. Þurfum við ekki að færa umræðuna um atvinnulíf úr þeim sporum að deila um framkvæmdir, sem þegar eru komnar af stað, yfir í umræðu sem mótar hvað framkvæmt verður? Við ræðum um álver og virkjanir, um orkufrekan iðnað o.s. frv. og erum óskaplega ósammála. Umræðan er mikilvæg. En þyrftum við ekki að ræða um fleira, koma með hugmyndir til framtíðar? Og að afla þeim fylgis áður en svo er komið í atvinnuástanmdinu að stórum hluta þjóðarinnar finnst ekki annað hægt en að bæta ástandið nema með orkufrekum iðnaði, sem fæstir eru svo innst inni ánægðir með. Hvað finnst ykkur um þetta?

Svar:

Hugmyndabanki ekki galin hugmynd:

Er ekki stóriðjan okkar það sem við höfum?? Mannauðurinn!

Erum við sem þjóð ekki löngu komin fram úr okkur með rangri atvinnu og peningastefnu??

Hugsanir okkar komast ekki að kjarnanum. Hver var hann?

Hann var að nýta allt sem að jörðin gefur, og virða jörðina og umhverfið. Lífræn ræktun tel ég vera framtíð landbúnaðar á Íslandi meðal annars af heilsufarsástæðum,. Ég vil meina að við mannfólkið séum komin svo langt frá upprunanum komum hvergi nálagt jörðinni í mörgu, því miður. Það er margt sem að bændur eru að gera atvinnulega séð, eitt sem að mínu mati stendur upp úr er ferðaþjónusta þar sem að farið er í skoðunar ferðir á hestum eða gangandi þá eru allir tengdir náttúrunni og koma endurnærðir heim.

Því miður virðist önnur ferðaþjónusta vera tengd því hversu miklar krónur verða eftir en ekki hversu mikil ánægja fellst út úr túrnum. Þarna getur ferðaþjónustu aðilar skoðað sjálfa sig og metið hvað sé ánægja og hvað sé afkoma, en auðvitað þarf þetta að fara saman.

Ég held að Landsbyggðin eigi marga möguleika á sviði ferðaþjónustu og ekki síður sem uppalandi margra barna unglinga sem að sjá ekkert nema malbikið.

Hér áður fyrr voru mörg börn af höfuðborgarsvæðinu send í sveit, það fólk á flest margar góðar minningar þaðan. En því miður fækkar þeim sem að eru send í sveitina og nú orðið þau sem að eiga við félagslegan vanda að etja.

Mörg börn vita ekki hvað sveit er og hvað þá að tengja tilfinningar sínar við dýrin og náttúruna.

Lífið snýst um að hafa nóg og fræða aðra vera þar sem að manni líður best, bera virðingu fyrir jörðinni og eiga möguleika á að njóta.


Sums staðar í félögum LBL hefur verið rætt um ræktun fjallajurta til að bæta mataræði eða til lækninga. Það hefur verið rætt um að nýta tún sem eru að fara í órækt á sama hátt. Það hefur verið rætt um stórbætta nýtingu sjávarafurða með nýrri tækni. Það er talað um meðferð og endurvinnslu sorps sem mikilvæga atvinnugrein og ekki síður það að halda landinu hreinu og fallegu. Það er talað um hugbúnaðariðnað, sem gæti farið fram víða um land, og listaiðnað. Eigum við aðleggja áherslu á slíka umræðu og margt fleira sem ekki er nefnt hér.

Svar:

Það er mjög þarft verk að endurvinna sorp og atvinnutengja það allstaðar og gera fólki ljóst hversu miklu er hent á haugana. Það þarf að vekja fólk til umhugsunar

um umhverfi sitt og heilsu. T.d þarf að snyrta umhverfið mjög víða. Það er hræðilegt að sjá girðingar liggjandi niðri árum saman það er alveg eins gott að fjarlægja þær, því að þær gagnast engu. Eitt sem að LBL gæti barist fyrir það er að landsmenn þurfi ekki að fá dýr leyfi fyrir að laga, breyta og fegra umhverfi sitt, svo sem að setja nýjan inngang eða að skipta um glugga á eigum sínum, á sama tíma eru íbúðar og útihús eru víða að hruni komin og fá að vera það án kostnaðar eða

sekta.

Hugbúnaðurinn átti að bjarga öllu fyrir fá einum árum, er hann ekki ágætur með, ef að hann verður ekki allur farin úr landi vegna stefnu stjórnvalda?

Matjurtir já það á að lífrænt rækta allskonar jurtir til átu og stórbæta nýtingu sjávarafurða og nýta ferkar smábátana til veiði heldur en togaranna, hér við landið. Ég tel að við sem samtök gætum vel beitt okkur fyrir svona málum sem að væru sýnileg öllum og gætum opnað augu landans fyrir snyrtimennsku. Verum vistvæn.



Meðal mikilvægra þátta í starfsemi okkar samtaka eru byggðaþingin. Á byggðaþingum reynum við að kalla fólk saman af öllu landinu, fræðimenn og áhugamenn til að ræða brennandi mál samtímans, sérstaklega málefni hinnar íslensku byggðar að sjálfsögðu. Við höfum reyndar bara haldið eitt sem svo mætti kalla, byggðaþingið að Hólum, 2004. Þar var kjörorðið: Auðgum mannlífið, eflum landsbyggðina. Þarna var farið yfir vítt svið, og tókst vel hvað varðar þátttöku, áhugafólks, fræðimanna og stjórnmálamanna. Eigum við að halda áfram að halda byggðaþing með þessum hætti, eigum við að þrengja umræðuefnið?

Svar:

það er alltaf fróðlegt að heyra skoðanir hjá fólki sem að hefur þekkingu og reynslu til að miðla, en svo er það spurning hvort og hvernig það notast byggðarþingsgestum. Við vitum svo sem ákaflega lítið um það, en vonandi einhverjum. Fróðleikur er alltaf fróðleikur.



Æskulýðsmál hafa skipað mikinn sess hjá okkur, með því að virkja æskufólk, einkum skólafólk inn í landsbyggðarumræðunu. Byggðin mín, hvað get ég gert fyrir hana er spurt eða hvernig á byggðin að vera til að fólk geti og vilji halda áfram að vernda hana og byggja? Með ritgerðarsamkeppnum hefur verið reyntr að fá ungt fólk inn í þessa umræðu með hugmyndir sínar. Nú er í undirbúningi að nýta heimasíðuna sérstaklega til að ná miklum fjölda æskufólkis um allt land inn í slíka umræðu.

Svar:

Já við vorum að virkja ungafólkið með ritgerðarsmíðum, og gáfum þær út til lestrar landsmönnum í ársriti okkar, ágætar hugmyndir en er eitthvað gert með þessar hugmyndir krakkanna??

Vonandi.



Ég gæti haldið svona áfram Upp í hugann kemur efling menningarstarfsemi, héraðs- og menningarhátíðir, íþróttairðkanir, skólastarfsemi. Þetta gæti orðið endalaust. Og samt mundi mér e.t.v. ekki detta það mikilvægasta í hug. Svo komið inn í umræðuna með ykkar hugmyndir og segið álit ykkar á öðrum.

Svar: í minni sýslu er frekar erfitt að blása í lúður og kalla saman fólk á flestar samkomur þá á ég við inni skemmtanir, að undanskildu þorrablótunum, og útihátíð Kántrí kóngsins á Skagaströnd.(:J en auðvitað væri örugglega gaman að gera sér glaðan dag úti í náttúrunni grilla og hafa t.d töðugjöld eða eitthvað álíka fjör.

Það má reyndar engin vera að neinu nú til dags. Kannski væri það áhugavert fyrir félagið að halda námskeið til að kenna fólki að slappa af og nýta tíman betur.

Heimasíðan okkar, vefrit LBL www.landlif.is


Eitt er það að lokum sem allt má sameina undir, en það er þróun heimasíðunnar eða vefrits LBL, landlif.is. Með internetinu hefur grasrótin öðlast tækifæri sem engin grasrótarsamtök höfðu áður. Við viljum gera vefrit okkar að tengli fyrir byggðaumræðu um allt land. Þar eiga nýjar hugmyndir að sjá dagsins ljós. Umræða á að fara fram um þessar hugmyndir og annað sem landsbyggðina varðar. Við eigum að vera tengill milli umræðu sem er í gangi í sveitarfélögum um allt land, og birtist oft í staðbundnum heimasíðum, sem auðvelt er að tengja í.

Svar:

Ekki hefur okkur gengið vel að koma af stað umræðum á vefnum okkar

Því miður en kannski verða kosnir nýir aðilar til að halda utan um umræður þar á fundinum fyrir vestan, og vonandi gengur þeim betur en okkur sem að höfum verið að reyna þetta..


Höfum við verið á réttri leið með heimasíðuna okkar? Hvernig gerum við fræðsluna og umræðuna fjölbreyttari? Eigum við að auka hið listræna efni og skemmtiefni? Hvernig fjölgum við lesendum? Eigum við að leyfa okkur að hafa auglýsingar til að undirbyggja sterkari rekstur og ritstjórn? Umræðan um sameingingu sveitarfélaga var fjörug á síðunni, og lesendum fjölgaði. Margt fleira hefur verið rætt. Meðal efnis sem margir lesa á síðunni eru smásögur, reynslusögur, vísur, sem sagt skemmti- og menningarefni almenns eðlis. Hvernig eigum við að halda áfram með heimasíðuna og gera hana enn þá fjörmeiri í umræðunni og skemmtilegri til aflestrar?

Svar:

Sennilega væri best að vera þarna með stutta pisla og forvitnilegar fréttir.

Ég er persónulega búin að leita til margra með að skrifa á þennan vef og hef orðið bjartsýn en viðbrögðin lítil eða engin, eldmóðurinn minn drukknað aftur og aftur.


Á það hefur verið bent að margt fólk sem mundi vilja fylgjast með heimasíðunni hafi ekki að jafnaði aðgang að tölvu. Gegnum vini, kunningja og ættingja má bæta mikið úr þessu. Prentum út efni eða endursegjum efni fyrir þá sem ekki hafa tölvu, og flytjum efni frá þeim inn á heimasíðuna..

Bestu kveðjur, skrifað í Grikklandi 20. maí.
Ragnar Stefánsson, formaður LBL

Leitum upprunans! er mitt slagorð.

Ég vil þakka Ragnari fyrir spurningar hans og hugleiðingar sem að mínu mati gott að fá til umhugsunar fyrir aðalfund LBL.

Með kærri kveðju

Sigríður Svavarsdóttir



Sigríður Svavarsdóttir
Netfang: siggasvavars@hive.is

Prentvæn útgáfa

 Nýjustu innlegg 
   - Tvær valkyrjur á ferð um landið..

  Samtökin

- Gríðarlega jákvæðar fréttir - hvalveiðar hefjast að nýju

  Fréttir og fróðleikur!

- Flokkarnir vilja tryggja fæðuöryggi

  Fréttir og fróðleikur!

- Fékk 100 þúsund krónur úr ofuredrúpotti NFFA 3. maí 2013

  Til umhugsunar.

- Svör frambjóðenda vegna viðhorfskönnunar Hagsmunasamtaka heimilanna!

  Fréttir og fróðleikur!

  
SEEDS Iceland - Kynningarefni

Sjálfboðaliðasamtökin SEEDS

Galleri ,BED & BREAKFAST, Holbækvej 103, 4450 Jyderup, Tel: 40197519 og 59208961, DANMARK

Auglýsing

Hela Norden ska leve
 Fyrirmyndirnar 
    Fréttir og fróðleikur!
 Fyrirlestrar og fróðleikur
  Byggðarþing
 Til umhugsunar.
 Fréttir frá öllum félögum
 Ferðasögur og fleira.
 Samtökin
 Landsbyggðarmál
 Á döfinni.
 Landsbyggðarfréttir
 Byggðarmál og stefna byggðar!
 Landbúnaðarmál.
 Ýmsar geinar.
 Samgöngur.
 Skemmtilegar frásagnir!
 Sjáanleg áhrif sameiningar á landinu!
 Skýrslur félaga
 Við sem erfum landið 
    Hvað er að gerast
 Unglingurinn á landsb.
 Allt og ekkert
Austurglugginn

Reykhólavefurinn

360.is

huni.is

patreksfjordur.is

strandir.is

Bændablaðið

skessuhorn.is

Skarpur - Þingeyskur fréttamiðill

Öxarfjörður - Nýjustu fréttir

Ísland.is

Selasetur Íslands
 Skráning á póstlista 
  
Netfang:

Nafn:

Lykilorð:
Aðgansorðið er sigga. Reglulega er send tilkynning til allra á póstlistanum
 
Hægt er að senda efni á netfangið: siggasvavars@hive.is
eða smella á:
'Leggja orð í belg'
í viðkomandi flokki
 
phpVefari 2004 - midlari@midlari.is - www.midlari.is