Um félagið
  
Stjórn
  
Félagatal
  
Lög
  
Starfsemin
  
Áhuga- og vinnuhópar
  
Hugmyndabanki
  
Landssamtökin - LBL

  Framfarafélag Dalvíkurbyggðar


 





Árskógssandur

Árskógssandur

Framfarafélag dalvíkurbyggðar

Lögheimili: Laugasteini, 620 Dalvík
Kennitala: 440405-2150
Banki: 1177-26-285
Félagsgjald 2007: kr. 1000
Sjá fyrirtækjaskrá RSK

>> Skrá sig í félagið <<


Markmið félagsins er að vinna að eflingu byggðar og velferð fólks á félagssvæðinu með hverjum þeim hætti sem það kann að hafa tök á.

Markmiðum sínum hyggst félagið ná með því:

Að laða til samstarfs einstaklinga, félög, samtök og fyrirtæki sem láta sig varða þróun byggðarlagsins og eflingu þess.

Að leggja áherslu á að hvert og eitt framlag einstaklinga, samtaka eða fyrirtækja getur skipt máli fyrir framtíð byggðarinnar.

Að stuðla að verndun náttúrulegra- og menningarlegra verðmæta í byggðarlaginu svo og sögulegra minja. Það vill í þessum efnum draga fram sérstöðu héraðsins og kynna hana.

Að beita sér fyrir kynningu á byggðarlaginu út í frá.

Að beita sér fyrir fræðslu um málefni sem skipt geta byggðarlagið miklu m.a. með námskeiðum eða í leshópum, og leitast með því við að auka færni fólks til starfa á sviði atvinnu- og menningarmála.